Sharepoint
Sharepoint tenging
Tenging við Sharepoint (Office 365) til að geyma öll skjöl. Þetta gefur þann möguleika að geta unnið í Office skjölum beint úr Vergo hvort sem það er í vefviðmóti eða í Office forritum á vélinni þinni.
Vinna í Office skjölum
Gerir þér kleift að vinna í Office skjölum inni í Vergo. Styður bæði að opna í vafra og í Office forritum.
Samvinna
Hægt er að vinna í skjölum með öðrum notendum í rauntíma.
Copilot
Copilot er viðbót í Office forritum sem gerir þér kleift að nota í Office forritum.
Sharepoint
Sharepoint tenging
Hægt er að tengja Vergo við Sharepoint og þannig hýsa skjöl í Sharepoint en nota Vergo til að stjórna þeim.
SharePoint býr til sérstakt geymslurými í Microsoft Office 365 svæði fyrir fyrirtæki notanda. Allt innihald er aðeins aðgengilegt í gegnum Vergo. Þetta felur í sér lykilatriði eins og stuðning við allar skráargerðir, leitarvirkni, deilingu, útgáfustýringu, samstarfsmöguleika og fleira.
Skjöl í SharePoint fylgja öllum öryggis- og samræmisreglum Microsoft 365 sem eru skilgreindar fyrir fyrirtæki notandans. Þetta felur í sér meðal annars eDiscovery, rekjanleika, gagnatapavarnir (DLP), varðveislustefnur og skilyrtan aðgang.
Öll gjaldtaka við gleymslu og notkun á skjölum fer þá í gegnum Microsoft. Ef þú ert nú þegar með Office 365 aðgang þá er mjög líklegt að þú sért nú þegar með aðgang að Sharepoint og þarft því ekki að greiða neitt aukalega.
Microsoft Purview Compliance
Skjölin lúta þeim reglum og ferlum sem Microsoft Purview stillingar fyrirtækis krefjast, þar á meðal samræmis- og öryggiseiginleikum eins og rekjanleika, gagnatapavörnum (DLP), varðveislustefnum og næmismerkingum (sensitivity labels).
eDiscovery og Auditing
Skjölin verða hluti af eDiscovery og audit kerfum fyrirtækis, sem gerir notandanum kleift að rekja og endurheimta skjöl og gögn eftir þörfum, allt innan samræmis- og regluvörsluramma fyrirtækisins.
Data Loss Prevention (DLP)
Allar DLP-stillingar, sem eru virkar í fyrirtækinu, gilda einnig um skjölin í SharePoint, og hindra þannig óviðeigandi eða óleyfilegan gagnaflutning ef það er nauðsynlegt.
Retention Policies og skilyrtur aðgangur
Fyrirtæki geta notað varðveislustefnur til að ákvarða geymslutíma gagna og skjala, og beitt skilyrtum aðgangsreglum (Conditional Access) til að tryggja öruggan aðgang eftir þörfum. Þannig er mögulegt að stjórna aðgangi að gögnum sem eru geymd í SharePoint með mikilli nákvæmni.
Við erum hérna til að hjálpa!
Þú getur hringt í okkur á virkum dögum kl 9-11 og 13-17.
Þú getur sent okkur tölvupóst og við munum svara eins fljótt og hægt er.
Heyrðu í okkur ef þú vilt kíkja í heimsókn.
+354 581-1700
vergo@vergo.is
Hallgerðargötu 13 (3.hæð), 105 Reykjavík, Iceland