Sharepoint

Sharepoint tenging

Tenging við Sharepoint (Office 365) til að geyma öll skjöl. Þetta gefur þann möguleika að geta unnið í Office skjölum beint úr Vergo hvort sem það er í vefviðmóti eða í Office forritum á vélinni þinni.

  • Vinna í Office skjölum

    Gerir þér kleift að vinna í Office skjölum inni í Vergo. Styður bæði að opna í vafra og í Office forritum.

  • Samvinna

    Hægt er að vinna í skjölum með öðrum notendum í rauntíma.

  • Copilot

    Copilot er viðbót í Office forritum sem gerir þér kleift að nota í Office forritum.

Sharepoint

Sharepoint tenging

Hægt er að tengja Vergo við Sharepoint og þannig hýsa skjöl í Sharepoint en nota Vergo til að stjórna þeim.

Skjöl eru geymd í Microsoft 365 aðgangi notandans

SharePoint býr til sérstakt geymslurými í Microsoft Office 365 svæði fyrir fyrirtæki notanda. Allt innihald er aðeins aðgengilegt í gegnum Vergo. Þetta felur í sér lykilatriði eins og stuðning við allar skráargerðir, leitarvirkni, deilingu, útgáfustýringu, samstarfsmöguleika og fleira.

Microsoft 365 stillingar gilda

Skjöl í SharePoint Embedded fylgja öllum öryggis- og samræmisreglum Microsoft 365 sem eru skilgreindar fyrir fyrirtæki notandans. Þetta felur í sér meðal annars eDiscovery, rekjanleika, gagnatapavarnir (DLP), varðveislustefnur og skilyrtan aðgang.

Kostnaður og gjaldfærsla

Öll gjaldtaka við gleymslu og notkun á skjölum fer þá í gegnum Microsoft sem Vergo greiðir. Viðskiptavinir Vergo greiða ekkert aukalega fyrir fyrstu 5GB af skjölum. En fyrir umfram það rukkar Vergo einungis fyrir gagnageymslu samkvæmt gjaldskrá á heimasíðu Vergo.

Microsoft Purview Compliance

Skjölin lúta þeim reglum og ferlum sem Microsoft Purview stillingar fyrirtækis krefjast, þar á meðal samræmis- og öryggiseiginleikum eins og rekjanleika, gagnatapavörnum (DLP), varðveislustefnum og næmismerkingum (sensitivity labels).

eDiscovery og Auditing

Skjölin verða hluti af eDiscovery og audit kerfum fyrirtækis, sem gerir notandanum kleift að rekja og endurheimta skjöl og gögn eftir þörfum, allt innan samræmis- og regluvörsluramma fyrirtækisins.

Data Loss Prevention (DLP)

Allar DLP-stillingar, sem eru virkar í fyrirtækinu, gilda einnig um skjölin í SharePoint Embedded, og hindra þannig óviðeigandi eða óleyfilegan gagnaflutning ef það er nauðsynlegt.

Retention Policies og skilyrtur aðgangur

Fyrirtæki geta notað varðveislustefnur til að ákvarða geymslutíma gagna og skjala, og beitt skilyrtum aðgangsreglum (Conditional Access) til að tryggja öruggan aðgang eftir þörfum. Þannig er mögulegt að stjórna aðgangi að gögnum sem eru geymd í SharePoint Embedded með mikilli nákvæmni.

Við erum hérna til að hjálpa!

Þjónustusími

Þú getur hringt í okkur á virkum dögum kl 9-11 og 13-17.

Sendu tölvupóst

Þú getur sent okkur tölvupóst og við munum svara eins fljótt og hægt er.

Kíktu í heimsókn

Heyrðu í okkur ef þú vilt kíkja í heimsókn.

Sími

+354 581-1700

Email

vergo@vergo.is

Staðsetning

Hallgerðargötu 13 (3.hæð), 105 Reykjavík, Iceland