Gervigreindartengingar (MCP)
Tengdu þína gervigreind við Vergo
Með MCP-tengingu Vergo geta Claude, ChatGPT og aðrir AI-biðlarar unnið með gögnin þín í Vergo: flett upp málum, skráð tíma og kostnað, haldið utan um verkefni og leitað í réttarheimildum með sömu leit og Lögfinnur notar. Alltaf með þínum heimildum.
Hvað getur gervigreindin gert í Vergo?
Þú segir gervigreindinni hvað á að gera á venjulegu máli, hún sér um að finna réttu gögnin í Vergo.
Málskostnaður
Lesa og skrá tíma, föst gjöld og útlagðan kostnað á mál. Verð, afsláttur og virðisaukaskattur koma af málinu og verðskránni, eins og þegar þú skráir í Vergo.
Tillögur að tímaskráningu
Farðu yfir tillögur Vergo að tímaskráningu, úr Outlook-fundum, tölvupósti og vinnu í Vergo, í samtali við gervigreindina: samþykktu þær, lagaðu tíma og lýsingu eða hafnaðu þeim.
Mál, verkefni og verkliðir
Fletta upp málum, lesa verkefni og verkliði með síum, stofna ný verkefni og breyta fresti, ábyrgðarmanni eða stöðu.
Réttarheimildir eins og Lögfinnur leitar
Ítarleg leit í dómum, lögum, reglugerðum og úrskurðum: lykilorðaleit, merkingarleit og leit eftir lagatilvísunum niður á grein og málsgrein. Gervigreindin les heimildirnar og vísar í þær með tengli inn í Vergo.
Heimildir vistaðar á mál
Biddu gervigreindina að vista heimild á mál með athugasemd um af hverju hún skiptir máli. Hún birtist strax undir heimildum málsins í Vergo.
Tengiliðir
Leita að viðskiptavinum, gagnaðilum og öðrum tengiliðum og nota upplýsingarnar í samhengi.
Gervigreindin sem þú þekkir
Claude, ChatGPT, Claude Code, Codex, Cursor og önnur tól sem styðja MCP (Model Context Protocol), opinn staðal fyrir tengingar gervigreindar við kerfi.
Örugg og undir þinni stjórn
Tengingarnar eru byggðar á OAuth, sama staðli og innskráning hjá Microsoft og Google.
Innskráning með Vergo-aðganginum
Þú tengir með venjulegri innskráningu í Vergo. Lykilorðið þitt fer aldrei til gervigreindarinnar.
Starfar með þínum heimildum
Gervigreindin sér og gerir aðeins það sem þú mátt sjálf(ur) í Vergo, og aðeins í því fyrirtæki sem þú tengdir.
Fyrirtækið ræður
Slökkt er á tengingum þar til stjórnandi kveikir á þeim. Stjórnandi velur hvað má eftir sviðum: lesa, skrá eða breyta.
Þú velur hvað má
Við tengingu velur þú hvaða aðgerðir gervigreindin fær. Aðgerðir sem breyta gögnum eru sérmerktar og gervigreindin staðfestir þær með þér fyrst.
Yfirsýn og aftenging
Allar tengingar sjást í Stillingum undir Tengingar, með hver tengdi og hvenær tengingin var síðast notuð. Þú getur aftengt hvenær sem er.
Svona tengist þú
Skref 1: Stjórnandi kveikir á tengingum
Í Stillingar › Tengingar › Fyrirtækjatengingar, og velur hvað tengingar mega.
Skref 2: Afritaðu slóðina
Í Stillingar › Tengingar › AI-biðlarar finnur þú slóð MCP-netþjóns Vergo og leiðbeiningar fyrir Claude, ChatGPT og fleiri.
Skref 3: Bættu Vergo við gervigreindina
Settu slóðina inn sem nýja tengingu (connector) í Claude, ChatGPT eða öðru tóli sem styður MCP.
Skref 4: Skráðu þig inn og samþykktu
Veldu fyrirtæki og hvað gervigreindin má gera. Þá er hún tilbúin.
Spurningar og svör
Hvað er MCP?
Model Context Protocol er opinn staðall sem gerir gervigreindartólum kleift að tengjast kerfum eins og Vergo á öruggan og stýrðan hátt. Claude, ChatGPT og mörg fleiri tól styðja hann.
Hver er munurinn á þessu og Lögfinni?
Lögfinnur er gervigreind Vergo, innbyggð í kerfið. Með MCP notar þín eigin gervigreind sömu leit í réttarheimildum, og getur auk þess unnið með mál, verkefni, tengiliði og málskostnað.
Hvert fara gögnin?
Þegar gervigreindin sækir gögn úr Vergo eru þau send til þeirrar gervigreindarþjónustu sem þú notar og falla undir skilmála hennar. Kynntu þér stefnu fyrirtækisins um notkun gervigreindar áður en þú tengir.
Getur gervigreindin breytt gögnum án minnar vitundar?
Hún getur aðeins það sem þú leyfir við tengingu og fyrirtækið leyfir. Aðgerðir sem breyta gögnum eru sérmerktar og gervigreindin er beðin um að staðfesta þær með þér áður en hún framkvæmir þær.
Við erum hérna til að hjálpa!
Þú getur hringt í okkur á virkum dögum kl 9-11 og 13-17.
Þú getur sent okkur tölvupóst og við munum svara eins fljótt og hægt er.
Heyrðu í okkur ef þú vilt kíkja í heimsókn.
+354 581-1700
vergo@vergo.is
Hallgerðargötu 13 (3.hæð), 105 Reykjavík, Iceland