Innheimtukerfi
Innheimta frá fyrsta bréfi til skilagreinar
Kröfur og vextir
Vergo sér um vaxtaútreikninginn
Almennar kröfur og skuldabréf
Skráðu hverja kröfu fyrir sig, til dæmis reikninga, eða skilmála skuldabréfs. Ein innheimtukrafa getur haft margar kröfur með mismunandi gjalddögum og vöxtum.
Vextir frá Seðlabankanum
Dráttarvextir, skaðabótavextir, óverðtryggðir útlánavextir og fastir vextir. Vextir Seðlabanka Íslands eru sóttir sjálfkrafa og vextir lagðir við höfuðstól á 12 mánaða fresti.
Vaxtatöflur
Fyrir kröfur þar sem vextir breytast á tímabilinu, til dæmis vextir skv. 8. gr. laga nr. 38/2001 fram að tilteknum degi og dráttarvextir eftir það, eins og oft er í dómsorðum.
Stofna úr dómsorði
Límdu inn dómsorð og gervigreind stofnar innheimtukröfuna með kröfum, vaxtatöflum og innborgunum. Þú ferð svo yfir niðurstöðuna.
Skuldabréf
Skráðu skilmála bréfsins og Vergo býr til kröfu fyrir hvern gjalddaga í vanskilum, með samningsvöxtum, verðbótum og vanskilavöxtum.
Allar tegundir endurgreiðslu
Jafnar afborganir, jafnar greiðslur eða fastar greiðslur, og vextir á sömu eða öðrum gjalddögum en afborganir.
Verðtrygging
Verðbætur eru reiknaðar með vísitölu neysluverðs, sem Vergo sækir sjálfkrafa.
Gjaldfelling
Innheimtu gjalddaga jafnóðum og þeir falla, gjalddaga til tiltekins dags, eða gjaldfelldu bréfið allt.
Greiðslur umfram gjaldfallið
Veldu hvort þær lækka greiðslubyrði, greiða næstu gjalddaga eða stytta lánstímann.
Nýir gjalddagar sjálfkrafa
Gjalddagar bætast við innheimtukröfuna þegar þeir falla í gjalddaga, svo staðan er alltaf rétt.
Aðilar skuldabréfsins
Skuldarar, ábyrgðarmenn, fyrirsvarsmenn og veðsalar eru skráðir á innheimtukröfuna og koma fram í bréfunum sem nota þá.
Kostnaður og gjaldskrá
Réttur kostnaður til réttra aðila
Þrjár tegundir kostnaðar
Áfallinn kostnaður fyrir vinnu lögmannsins, útlagður kostnaður sem er greiddur öðrum, til dæmis fjárnámsgjald, og kostnaður sem kröfuhafinn bar sjálfur. Hver tegund fer á réttan stað á skilagrein.
Virðisaukaskattur
Vergo sér hvort kröfuhafi er á VSK-skrá og ákveður út frá því hvort skuldarinn greiðir virðisaukaskattinn eða hann dregst frá hlut kröfuhafa.
Innheimtuþóknun
Reiknuð eftir þrepum gjaldskrárinnar og uppfærist sjálfkrafa þegar kröfur, vextir eða innborganir breytast. Henni má breyta fyrir eina innheimtukröfu eða setja fasta fjárhæð.
Gjaldskrá stofunnar
Vergo leggur til gjaldskrá fyrir öll innheimtustig. Breyttu fjárhæðum, bættu við liðum og veldu hvaða liði hvert bréf bókar.
17 stöðluð bréf, tilbúin til notkunar
Vergo fyllir bréfin út með upplýsingum innheimtukröfunnar, bókar kostnaðinn og vistar þau sem PDF.
Fruminnheimta og milliinnheimta
Innheimtuviðvörun og milliinnheimtubréf 1, 2 og 3.
Löginnheimta
Innheimtubréf, greiðsluáskorun, stefna, tilkynning um málshöfðun, aðfararbeiðni og nauðungarsölubeiðni eftir fjárnám.
Gjaldþrotaskipti
Greiðsluáskorun skv. 65. gr. gþl., krafa um gjaldþrotaskipti og kröfulýsing í þrotabú.
Skuldabréf
Innheimtubréf, greiðsluáskoranir og nauðungarsölubeiðni fyrir skuldabréf og veðskuldabréf.
Fylgiskjöl
Skrá yfir framlögð skjöl og birtingarvottorð verða til með bréfinu.
Staða miðuð við
Veldu daginn sem fjárhæðir bréfsins miðast við, til dæmis úrskurðardag í kröfulýsingu í þrotabú.
Bréfin eins og stofan vill hafa þau
Stofan getur breytt stöðluðu bréfunum og búið til sín eigin.
Ritill með forskoðun
Breyttu texta, haus, neðanmáli, letri og spássíum og sjáðu bréfið eins og það kemur út, á meðan þú skrifar.
Færibreytur og töflur
Settu inn nafn skuldara, fjárhæðir og dagsetningar, og töflur sem fyllast út sjálfkrafa: kröfur, kostnað, samantekt, dómkröfur og undirskrift.
Eigin bréf og eigin reitir
Afritaðu staðlað bréf til að búa til nýtt, og láttu bréfagluggann spyrja um það sem bréfið þarf, til dæmis þingfestingardag eða tilvísun kröfuhafa.
Útgáfusaga
Hver vistun verður ný útgáfa, svo alltaf er hægt að fara til baka eða endurstilla á bréf Vergo.
Innborganir og skilagreinar
Frá greiðslu skuldarans til uppgjörs við kröfuhafann.
Ráðstöfun greiðslna
Veldu hvort vextir eða höfuðstóll greiðast fyrst og í hvaða röð kröfurnar greiðast, eða láttu greiðslu fara fyrst inn á tiltekna kröfu. Forskoðun sýnir hvert greiðslan fer.
Afskriftir
Skráðu eftirgjöf eða leiðréttingu sem lækkar skuldina án þess að peningar komi inn.
Hlutaskilagrein og lokaskilagrein
Vergo reiknar hvað fer til lögmanns, hvað er skilað til kröfuhafa og hvað er dregið af í staðgreiðslu af vöxtum.
Tímalína
Bréf og breytingar á stöðu og innheimtustigi eru skráð í tímalínu innheimtukröfunnar, svo saga hennar er alltaf skýr.
Svona gengur innheimtan fyrir sig
Skref 1: Stofnaðu innheimtukröfu
Veldu mál, kröfuhafa og skuldara, og aðra aðila ef við á, eða límdu inn dómsorð og láttu gervigreind stofna hana.
Skref 2: Skráðu kröfurnar
Hverja kröfu með gjalddaga og vöxtum, eða skilmála skuldabréfs. Vergo reiknar vextina.
Skref 3: Sendu bréf
Veldu bréf, og Vergo fyllir það út, bókar kostnaðinn og vistar það sem PDF.
Skref 4: Gerðu upp
Skráðu innborganir og gerðu upp við kröfuhafa með skilagrein.
Spurningar og svör
Hvaðan koma vextirnir?
Vergo sækir vexti Seðlabanka Íslands og vísitölu neysluverðs sjálfkrafa, svo þú þarft aldrei að slá inn vexti eða vísitölu.
Er hægt að innheimta skuldabréf?
Já. Þú skráir skilmála bréfsins og Vergo býr til kröfu fyrir hvern gjalddaga í vanskilum, með samningsvöxtum, verðbótum og vanskilavöxtum, og bætir við nýjum gjalddögum þegar þeir falla.
Get ég breytt bréfunum?
Já. Þú getur breytt stöðluðu bréfunum eða afritað þau til að búa til eigin bréf, með lógói stofunnar, eigin texta og eigin reitum. Hver vistun er geymd í útgáfusögu.
Hvernig er innheimtuþóknun reiknuð?
Eftir þrepum í gjaldskrá stofunnar, af höfuðstól eða höfuðstól og vöxtum. Hún uppfærist sjálfkrafa þegar kröfur, vextir eða innborganir breytast. Ef þóknunin er umsamin eða dæmd setur þú fasta fjárhæð.
Hvernig er farið með virðisaukaskatt?
Ef kröfuhafi er ekki á VSK-skrá greiðir skuldarinn virðisaukaskattinn ofan á kostnaðinn. Ef hann er á VSK-skrá dregst virðisaukaskatturinn frá hlut kröfuhafa á skilagrein. Þessu má breyta á hverjum kostnaði.
Hvað kemur fram á skilagrein?
Innborganirnar sem hún gerir upp, hvað fer til lögmanns, hvað er skilað til kröfuhafa og staða kröfunnar. Þú getur breytt texta skilagreinar áður en hún er gefin út.
Getur gervigreind unnið í innheimtunni?
Já. Með „Stofna úr dómsorði“ les gervigreind dómsorð og stofnar innheimtukröfuna. Ef Claude eða ChatGPT er tengt við Vergo getur það líka stofnað innheimtukröfur og skráð innborganir, með þínum heimildum.
Er innheimtukerfið innifalið í verðinu?
Já, innheimtukerfið er hluti af Vergo Law.
Við erum hérna til að hjálpa!
Þú getur hringt í okkur á virkum dögum kl 9-11 og 13-17.
Þú getur sent okkur tölvupóst og við munum svara eins fljótt og hægt er.
Heyrðu í okkur ef þú vilt kíkja í heimsókn.
+354 581-1700
vergo@vergo.is
Höfðabakki 9, 110 Reykjavík, Iceland

